Spurt og svarað
Tölvan mín er biluð. Borgar sig nokkuð að gera við hana?
Það borgar sig oftast að gera við tölvur nema þær séu mjög gamlar eða búnar ódýrum afllitlum vélbúnaði. Með því að láta gera við tölvuna sparar þú peninga og leggur þitt af mörum við að minka kolefnissporið.
Tölvan mín kveikir ekki á sér. Hvað er að henni?
Það er margt sem getur orsakað það að tölvan kveikir ekki á sér og einfaldast fyrir þig að koma með hana í bilanagreiningu. Þú getur lesið meira um bilanagreininguna hér.
Það kemur ekkert á skjáinn þegar ég kveiki á tölvunni.
Það er margt sem getur orsakað það að ekki komi mynd á skjáinn þinn. Móðurborðið, vinnsluminnið eða skjárinn sjálfur gæti verið bilaður.
Fartölvan mín hitnar mikið og hún er óvenjulega hávær.
Kælikerfi fartölvunnar þinnar gæti verið fullt af ryki en við mælum með því að fartölvur séu rykhreinsaðar einu sinni á ári. Ef tölvan er eldri en 4 ára þá getur einnig verið nauðsynlegt að endurnýja kælileiðni á örgjörvakælingu tölvunnar. Þú getur lesið meira um ofhitnun tölvunnar hér.
Tölvan mín er mjög hæg og leiðinleg. Er hægt að laga það?
Við gerum tölvur hraðari með því að uppfæra þær og setja í þær nýjan og hraðari vélbúnað eins og t.d. SSD diska. Einnig getur verið að stýrikerfi tölvunnar þinnar sé bilað eða það sé vírus á henni. Ef þú kemur með tölvuna til okkar í bilanagreiningu færðu að vita hvað er að henni og hvað það kostar að laga hana.
Hvað eruð þið lengi að gera við tölvuna mína?
Viðgerðartími fer eftir því hvað er að tölvunni þinni. Best er fyrir þig að koma með tölvuna í bilanagreiningu en að henni lokinni færðu að vita hvað er að tölvunni, hvað það kostar að gera við hana og hvað það tekur langan tíma. Bilanagreining tekur oftast að hámarki 1 sólarhring.
Það helltist vökvi yfir fartölvuna mína. Get ég þurrkað hana með því að snúa henni við?
Nei það dugar ekki að snúa tölvunni við. Ef það hefur farið vökvi yfir tölvuna þína þá þarftu að rjúfa straum af henni strax. Með straumi er bæði átt við að aftengja ragmagnstengi og rafhlöðuna. Ef þú getur ekki tekið rafhlöðuna úr tölvunni sjálf(ur) þá þarftu að koma henni á verkstæði sem allra fyrst. Stundum er hægt að bjarga tölvum sem hafa fengið vökva yfir sig en þá skiptir máli um hvernig vökva er að ræða og hversu langt er liðið frá vökvatjóninu.
Tölvan mín tekur ekki straum / það gerist ekkert þegar ég set hana í samband við rafmagn.
Ef tölvan þín tekur ekki straum þegar henni er stungið í samband við rafmagn þá getur verið að raftengi tölvunnar sé brotið, raflaðan sé orðin léleg eða hleðslutækið sé bilað. Lélegar rafhlöður eiga það til að valda því að tölvan tekur ekki straum. Þá er oft nóg að taka farhlöðuna úr sambandi frá tölvunni. Brotin raftengi er oftast hægt að skipta um.
Þarf ég vírusvörn á tölvuna mína?
Já þú þarft vírusvörn í öllum tilvikum. Að nota tölvu án vírusvarnar er ekkert ósvipað því að vera með ólæstar dyr. Ef einhver reynir að opna dyrnar þá kemst hann inn. Eina örugga vírusvörnin er keypt vírusvörn en slík forrit geta veitt allt að 95% vörn fyrir vírusum
Gerið þið við síma?
Nei við gerum ekki við síma
Gerið þið við spjaldtölvur
Já við gerum við spjaldtölvur