Um okkur

Hver erum við?

Vefsíðugerð frá 2009

Heimasíðugerð og hýsingar.

Við byrjuðum að gera heimasíður þegar þær voru unnar í html og notast var við forrit eins og FrontPage og gamla góða NotePad ritilinn. Síðan hafa einhverjir tugir ára liðið hjá og í dag vinnum við með WordPress heimasíður og WooCommerce netverslanir. Við bjóðum einnig upp á hagstæðar lausnir í hýsingum fyrir heimasíður.  Vefsíðurnar eru hýstar í öruggu umhverfi og öryggisafrit eru tekin daglega.  

 

Það er ekki nóg að vera með vefsíðu.

Vefsíðan á að hjálpa viðskiptavinum að finna fyrirtækið, skilja þjónustuna og taka ákvörðun um viðskipti. Vefsíður lítilla fyrirtækja eru oft á tíðum með litlum upplýsingum um viðkomandi fyrirtæki og þá þjónustu / vörur sem það býður til sölu.  Þá eru heimasíðurnar oftar en ekki óöruggar vegna skorts á öryggisuppfærlsum og afritunarmál eru í ólestri. 

Tölvuland sérhæfir sig í rekstri, viðhaldi og ráðgjöf fyrir WordPress og WooCommerce vefi. Eftir áratuga reynslu í tölvuþjónustu og rekstri eigin netverslunar hjálpum við litlum fyrirtækjum að nýta vefinn betur.

 

  • Tölvuland ehf
  • Kennitala: 620509-0860
  • Stofnár: 2009
  • VSK númer: 101461
  • Skeljagrandi 1
  • 107 Reykjavík