Um okkur
Hver erum við?
Vefsíðugerð frá 2009
Heimasíðugerð og hýsingar.
Við byrjuðum að gera heimasíður þegar þær voru unnar í html og notast var við forrit eins og FrontPage og gamla góða NotePad ritilinn. Síðan hafa einhverjir tugir ára liðið hjá og í dag vinnum við með WordPress heimasíður og WooCommerce netverslanir. Við bjóðum einnig upp á hagstæðar lausnir í hýsingum fyrir heimasíður. Vefsíðurnar eru hýstar í öruggu umhverfi og öryggisafrit eru tekin daglega.
Það er ekki nóg að vera með vefsíðu.
Vefsíðan á að hjálpa viðskiptavinum að finna fyrirtækið, skilja þjónustuna og taka ákvörðun um viðskipti. Vefsíður lítilla fyrirtækja eru oft á tíðum með litlum upplýsingum um viðkomandi fyrirtæki og þá þjónustu / vörur sem það býður til sölu. Þá eru heimasíðurnar oftar en ekki óöruggar vegna skorts á öryggisuppfærlsum og afritunarmál eru í ólestri.
Tölvuland sérhæfir sig í rekstri, viðhaldi og ráðgjöf fyrir WordPress og WooCommerce vefi. Eftir áratuga reynslu í tölvuþjónustu og rekstri eigin netverslunar hjálpum við litlum fyrirtækjum að nýta vefinn betur.
- Tölvuland ehf
- Kennitala: 620509-0860
- Stofnár: 2009
- VSK númer: 101461
- Skeljagrandi 1
- 107 Reykjavík